Hæhó.
Velkomin á síðuna mína: Hugleiðingar, þar sem að ég mun birta reglulegar hugleiðingar mínar um málefni líðandi stundar.
Þú mátt búast við ansi fjölbreyttu efni, því hugleiðingar mínar spanna allt frá stjórnmálum til heilsu, menningar til menntunar, og bara fréttir líðandi stundar.
Annað efni, s.s. fjölmiðlagreinar, umsagnir og ferilskrá má áfram finna á vefsíðunni minni, steinarbragi.is
En hver er ég?
Ég er fæddur 3.júlí 2007 í Reykjavík.
Foreldrar mínir eru Sigríður Birna Bragadóttir (1970), náms- og starfsráðgjafi við Menntaskólann í Hamrahlíð; og Sigurjón Þorsteinsson (1964), framkvæmdastjóri Fiskvinnslunar Útvíkur í Hafnarfirði. Ég á eina systur, Önnu Jónu (2011).
Mín reynsla er fremur óhefðbundin. Fagleg starfsreynsla hófst árið 2021 þegar að ég settist í skólaráð Setbergsskóla. Árið eftir bauðst mér að taka sæti í Ungmennaráði Hafnarfjarðar, og þaðan fór boltinn að rúlla.
Ég tók sæti í Stýrihópi Barnvæns Sveitarfélags í Hafnarfirði, þar sem unnið var að innleiðingu samnefnds verkefnis Unicef í stjórnsýslu Hafnarfjarðar. Á þessum tíma vann ég einnig að fleiri verkefnum hjá bænum.
Árið 2024 lenti ég í miklu áfalli þegar að ég rakst á vegg andlega og þurfti að draga mig úr framhaldsskóla og öllu starfi, en á þessum tíma var ég í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ (FG). Það varð til þess að ég öðlaðist nýja sýn á lífið, reynslu sem ég reyni að nýta enn þann dag í dag.
Ég tók þátt í stefnumótunarvinnu innan BUGL á þessum tíma, í gegnum Notendaráð. Í ágúst 2025 tók ég síðan sæti í Ungmennaráði Rauða krossins, endurreistum vettvangi ungmenna innan Rauða krossins á Íslandi.
Pólitískt starf
Árið 2026 tók ég stórt skref út fyrir þægindarammann og gekk í Viðreisn. Mér var treyst fyrir tuttugasta sæti á lista flokksins í Hafnarfirði í kosningunum 16.maí og vann ég ötullega að framboðinu þá um vorið, sem var krefjandi því að á þessum tíma var ég enn í meðferð við andlegum veikindum.
Svo fór að Viðreisn í Hafnarfirði tvöfaldaði fylgið sitt og bætti við sig fulltrúa, mér var treyst fyrir að setjast í Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar, og sit þar enn.
Önnur reynsla
Þó að meginþorri reynslu minnar má rekja til setu í ýmsum starfshópum og nefndum, hef ég einnig unnið önnur störf. Ég var jafningjafræðari eitt sumarið í Vinnuskóla Hafnarfjarðar, sem að skapaði fyrir mig dýrmæta reynslu í fræðslu. Sumarið 2024 ákvað ég síðan að prófa að starfa í alþjóðlegu umhverfi er ég tók starfi hjá Iceland Travel við þjónustu skemmtiferðaskipa.
Greinaskrif mín eru einhver en þegar að þessi síða fer í loftið hafa birst eftir mig sex greinar í íslenskum fjölmiðlum. Auk þess hef ég samið fréttatilkynningar, umsagnir og annað efni sem bæði hefur verið birt og ekki.
Ég hef ritstýrt tveimur bókum, stuttum barnabókum eftir mömmu mína. Þær eru: Hver er ég? Styrkleikar og Hver er ég? Áhugamál. Það var afar skemmtilegt verkefni og gaf mér innsýn inn í bókaheiminn.
Ég hef einnig skrifað óútgefnar bækur, sem kannski líta ljós einhverndaginn - hver veit?
Meðal annara verkefna sem ég hef tekið mér á hendur er framkvæmdastjórn við uppsetningu söngleiksins Mamma Mia í Setbergsskóla - en þar voru aðal verkefni mín: umsjón með miðasölu, umsjón með leikskrá og öðru markaðsefni, uppgjör og reikningagerð, pantanir á veitingum, ég var tengiliður við foreldra, styrkveitendur og fjölmiðla, veitti stuðning við nefndir sem sjá um ,,front of house’’ og sinnti öðrum þeim verkefnum sem gátu komið upp.
Þá hef ég einnig sinnt sjálfboðastörfum hjá Rauða krossinum og ráðgjöf við utanumhald fyrirtækja innan stórfjölskyldunnar.
Þekkingaröflun
Ég legg stöðuga áherslu á endurmenntun, og hef í því skyni tekið ýmis námskeið síðan að ég þurfti að draga mig til baka úr framhaldsskólanámi.
Ég hef m.a. tekið námskeið í hagsmunastjórnun, crisis management, þátttöku barna, vellíðan og svo ögraði ég mér líka aðeins og fór á talsetningarnámskeið Stúdíó Sýrlands.
Þá hef ég setið námskeið í skyndihjálp og beitingu Nalaxone nefúða.
Takk fyrir að lesa
Mér þykir vænt um að þú hafir gefið þér tíma til þess að heimsækja vefsíðuna mína, lesið hugleiðingar og svo lesið þennan langa texta. Takk!
Ef þú vilt lesa meira er helling af efni að finna inn á hinni síðunni minni (steinarbragi.is) eða á LinkedIn (in/steinarnoi).
Mér þætti gaman að heyra í þér! Sendu mér póst á noi@steinarbragi.is eða skiló á @steinarnoi. Ég er með sama notendanafnið inni á Facebook, Instagram, TikTok, Snapchat, Threads, LinkedIn og Substack.
Hafðu það annars bara gott í dag!
Þinn,
Steinar Bragi
To learn more about the tech platform that powers this publication, visit Substack.com.






