Það eru komnir rúmir fimm mánuðir frá sveitarstjórnarkosningum. Þá tóku til starfa hundruðir bæjarfulltrúa og einhverjir þúsundir annara einstaklinga sem sinna m.a. hlutverki varamanna í sveitarstjórn, aðal- og varamanna í ráðum, nefndum og samráðshópum, fulltrúa í stjórnum og starfshópum o.s.frv.
Þetta fólk starfar fyrir íbúa. Íbúar greiða laun fólksins og það nýtur vonandi góðs af ákvörðunum þess. Síðan snýst þetta við að fjórum árum liðnum þegar að við kjósum aftur.
Fulltrúar fólksins
Það heyrist oft hjá fulltrúum íþróttafélaga, samtaka, stofnanna og fyrirtækja þessi gamla en sanna klausa:
,,Þið komið og sýnið ykkur fyrir kosningar, allt voða flott og þið ætlið að standa ykkur vel. Svo hverfið þið næstu fjögur árin í þægilegu innivinnuna og komið síðan að því liðnu aftur eins og ekkert hafi í skorist.’’
Vissulega halla kjörnir fulltrúar sér ekki bara aftur í hægindastólnum í fjögur ár og sinna engu. Það er nefnilega mikil vinna sem fer fram innan sveitarfélagsins á hverju kjörtímabili.
En þessi vinna er alls ekki alltaf sýnileg, stundum getur reynst erfitt að fá mikilvæg mál til umræðu hjá sveitarstjórnum og tengslin við íbúana eru oft lítil nema á fjögurra ára fresti.
Það að efla tengslin milli kjörinna fulltrúa og bæjar- eða borgarbúa á kjörtímabili er gríðarlega mikilvæg leið til þess að tryggja að allir séu á sömu blaðsíðu og enginn misskilningur komi upp.
Hverjir eru bæjarfulltrúarnir okkar?
Nú hafa vefsíður flestra íslenskra sveitarfélaga gengið í endurnýjun lífdaga síðustu tvö til þrjú ár. Þar gefst kjörið tækifæri til þess að skapa innsýn inn í starf bæjarstjórna, og það er stundum nýtt - en oftast verulega vannýtt.
Á heimasíðum flestra sveitarfélaga eru upplýsingar um bæjarfulltrúa einfaldar: nafn, netfang og mynd af fulltrúanum. Sumstaðar er ekki einu sinni gefið upp netfang og myndir eru heldur ekki sjálfgefnar.
Á eldri vefsíðum sveitarfélaga eins og Kópavogsbæ, Akureyrarbæ og Garðabæ var oft að finna æviágrip bæjarfulltrúa. Í dag er slíkt aðeins að finna á vefsíðu tveggja af sjö stærstu sveitarfélögum landsins: Reykjavík og Garðabæ. Á vefsíðu beggja sveitarfélaga hafa æviágrip þó ekki ratað að fullu inn hjá öllum fulltrúum.
Hvaða hagsmuni hafa bæjarfulltrúarnir?
Annað sem getur skipt máli þegar kemur að gagnsæi er að gera sundurliðun á fjárhagslegum hagsmunum bæjarfulltrúa opinberar. Í mörgum tilfellum er á vefjum sveitarfélaga aðeins að finna eldgamlar upplýsingar um fjárhagslega hagsmuni bæjarfulltrúa sem eru hættir störfum eða hafa ekki endurnýjað upplýsingarnar síðan í upphafi síðasta kjörtímabils.
Fyrir því geta reyndar verið margar ástæður. Meðal annars eiga bæjarfulltrúar það til að gleyma eða sleppa að endurnýja upplýsingar um sig, og svo getur ástæðan líka verið að vefir sveitarfélaganna séu ekki uppfærðir, þó að fulltrúinn hafi fyllt út upplýsingar.
Bæjarvika
Á Alþingi eru haldnar sérstakar kjördæmavikur. Þetta eru tvær vikur á vetri, að hausti fara þingmenn hvers kjördæmis í ferð með öðrum þingmönnum sama kjördæmis en að vori er dagskrá kjördæmaviku hvers flokks fyrir sig að ákveða.
Vissulega er eðli sveitarstjórnarmálanna öðruvísi en landsmálanna. Bæjarfulltrúar þurfa ekki að flytja úr sínu kjördæmi til þess að sinna sínum störfum og þeir eru í langflestum tilfellum ekki á fullum launum, þ.e.a.s. þeir eru í annarri vinnu meðfram fulltrúastörfum.
En hugmyndin um að bæjarfulltrúar og aðrir kjörnir fulltrúar fari í auknum mæli í ,,kjördæmaheimsóknir’’ er samt í eðli sínu sniðug. Í sumum sveitarfélögum hefur þetta verið innleitt að einhverju leyti, ég ætla ekki að alhæfa um það. En í amstri endalausrar ákvarðanatöku eiga þessir hlutir til að gleymast, og þá er ekki seinna vænna en að fara í ,,milli-kosningaham’’.
Þátttakan
Að öllu ólöstuðu er þó mikilvægasti þátturinn eflaust sá að bæjarbúar séu þátttakendur í ákvarðanatöku. Þetta gengur samt á báða bóga.
Sveitarfélögin mættu m.a. skoða að fjölga íbúafundum, stofna íbúaráð og gera starfsemina þannig úr garði að bæjarbúar eiga ekki einungis greiðan aðgang að gögnum, heldur séu þeir þátttakendur í starfinu.
Ungmennaráð, öldungaráð, og samráðshópur um málefni fatlaðs fólks, eru líka mjög mikilvægir vettvangar í nánast öllum sveitarfélögum landsins. Efla þarf tengslin við þessi ráð, en það er þó til batnaðar í flestum sveitarfélögum.
Eru íbúar tilbúnir?
Við fjárhagsáætlanagerð myndast kjörið tækifæri til þess að leggja sína skoðun fram, enda eru sveitarfélögin bundin af áætlunum þegar kemur að stórum ákvörðunum það árið, nema samþykktir séu viðaukar. Sveitarfélög eins og Garðabær hafa auglýst eftir tillögum fyrir fjárhagsáætlanagerð um árabil en í ár bárust aðeins 16 tillögur í gegnum samráðsgátt bæjarins.
Svo nú þegar að fjárhagsáætlanagerð gengur í garð, ætla ég að hvetja íbúa í sveitarfélögum nær og fjær að kynna sér málin. Það vita það kannski ekki allir en á vefsíðum nánast allra sveitarfélaga landsins er að finna oft ítarlegar fundargerðir. Þá er oft hægt að gramsa á vef sveitarfélaganna eftir ,,opnu bókhaldi’’, sem er oft uppfært sjálfvirkt þó að það sé ekki alltaf auglýst.
Bæjarfulltrúar fyrir bæjarbúa
Á Íslandi eru eitthvað yfir sextíu sveitarfélög, sem öll sinna mikilvægri starfsemi. Þau bera ábyrgð á menntun barnanna, þau bera ábyrgð á þjónustu gagnvart fólki með fötlun, þau sjá um að íþróttalíf í sveitarfélaginu gangi smurt, þau reka bókasöfn og félagsheimili, sjá um göturnar okkar, úthluta lóðum. Ég gæti haldið endalaust áfram.
Þetta er starfsemi sem varðar okkur öll, er í sameign okkar allra. Bæjarbúar eru eigendur, og eigendur eiga rétt á innsýn inn í reksturinn.
Það er í hag okkar allra.
Heimildir og frekara lesefni:
Sveitarstjórnarlög 138/2011 má finna á vef: https://www.althingi.is/lagas/nuna/2011138.html
Reglugerð 1212/2015 um fjármál sveitarfélaga má finna á vef: https://island.is/reglugerdir/nr/1212-2015
Ég hvet ykkur til þess að heimsækja vefi sveitarfélaganna og skoða upplýsingar um bæjarstjórnir. Dæmi eru vefir Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Garðabæjar og Reykjanesbæjar.
Svo eru það fundargerðirnar sem er m.a. að finna á vef Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Garðabæjar og Reykjanesbæjar.
Að lokum er að finna opið bókhald m.a. á vef Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Kópavogs og Reykjanesbæjar.





