Í baráttunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna kom í ljós að Íslendingum þykir greinilega vænt um landið sitt. Þjóðin vill vernda sjálfstæði landsins og ráða sínum málum sjálf.
Ég geri ráð fyrir að sömu einstaklingar, og í rauninni við öll, viljum vernda tungumálið. Það er oft talað um á stórum dögum að það eigi undir högg að sækja. Við höfum samband við stórfyrirtæki úti í heimi til þess að tala fyrir innleiðingu íslensku í alla þessa tækni. Við kvörtum undan gervigreindar-íslensku og hvernig ,,fín’’ íslenska eigi að vera.
Á sama tíma höldum við íslenskunni í heiðri með því að hafa allt efni á íslensku, tala íslensku og kynna íslensku, ekki satt?
Ferðalag í tveim heimum
Tökum lítið dæmi. Í sumar fór ég í ferðalag til Bandaríkjanna. Áður en ég lagði af stað fyllti ég út ESTA, allt á íslensku, auðvitað einhver bjöguð orð sem má bæta, en samt ansi vel þýtt.
Við keyrðum í Teslu út á völl, þar sem að allt viðmótið er á snuðrulausri íslensku og ekki má búast við að það hafi verið framkvæmt af gervigreind. Á leiðinni birtir maður myndband á TikTok, þar sem allt er á snuðrulausri íslensku.
Aftur á móti, þegar að maður mætir út á Keflavíkurflugvöll, sem er í eigu íslenska ríkisins, eru flest skilti og efni feitletruð á ensku en með mjög smáum eða jafnvel engum íslenskum texta.
Maður gengur í gegnum flugvöllinn og fer upp í vél Icelandair. Eðlilega skoðar maður matseðilinn. ,,Verði þér að góðu’’, stendur skýrum stöfum á forsíðunni en það er um það bil allur íslenski textinn þar. Eflaust er það plássleysi sem hamlar notkun íslenskunnar, kannski er það betra í afþreyingarskjánum? Nei vinur minn. Efnið þar er á mjög bágri eða engri íslensku yfirhöfuð.
Á meðan að erlend fyrirtæki og jafnvel erlend stjórnvöld eru öll af vilja gerð til þess að bæta íslenskum texta inn í kerfin sín (sem að Íslendingar nota oft ekki), nennum við Íslendingar ekki einu sinni að þýða eins einfalt efni og matseðil eða skilti yfir á íslensku.
Diabetes eða sykursýki?
Mig langar að taka annað dæmi. Ég er með diabetes, eða það sem áður var á íslensku kallað sykursýki. Árið 2022 voru hagsmunasamtök fólks með þennan sjúkdóm, Samtök sykursjúkra, skýrð Diabetes Ísland. Góð og gild ástæða var til að hverfa frá orðinu sykursýki, enda getur það valdið misskilningi á einkennum sjúkdómsins. En í stað þess að líta inn á við og efla íslenskuna sem fullgilt læknamál, ákváðum við að taka upp erlenda orðið Diabetes.
Orðið Diabetes latneskt en á rætur að rekja til forn-gríska orðsins diabētēs. Bókstafleg meining þess í forn-grísku er ,,að flæða í gegn’’. Orðið sykursýki er líkast til upprunnið úr nágrannamálum, t.d. dönsku þar sem var talað um sukkersyge, eða þýsku þar sem var talað um Zuckerkrankheit. Markmiðið með þeim heitum var eflaust að skilgreina betur einkenni sjúkdómsins, því að þvagið væri sætt. En eins og með mörg önnur orð yfir ýmsa sjúkdóma, á það ekki við í dag.
Tískan hefur því verið að horfa til latneska orðsins. Enginn vilji hefur verið til þess að leita á ný mið eftir nýju orði.
Hættuleg þróun
Þessi litla dæmisaga getur þóst saklaus, en ef ekki er að gáð getur þetta reynst hættuleg þróun. Eitt og eitt orð getur breyst úr íslensku í ensku (eða önnur tungumál) án nokkurra vandkvæða, en eftir því sem að fleiri íslensk orð hverfa, því veikari verður íslenskan.
Við erum að sjá þetta allt í kringum okkur. Verslanir á borð við Rúmfatalagerinn og Fríhöfnina eru orðnar að Jysk og Ísland Duty Free. Ef við lítum lengra aftur í tímann má sjá fleyg heiti á borð við Flugleiðir, en síðustu vísbendingar um það heiti eru í kringum 2003 og síðan þá hefur sama félag einfaldlega verið kallað Icelandair. Á sama tíma má sjá stór flugfélög bera enn heiti sem hafa merkingu á þeirra móðurmáli. Ég get nefnt Lufthansa (Luft er loft á þýsku og hansa vísun í Hansasambandið) og Aer Lingus (dregið af orðinu aerloingeas á írsku).
Við erum hætt að þýða heiti nýrra alþjóðlegra þáttasería þegar þær koma til landsins. Gott dæmi um þetta er þáttaröðin Taskmaster, sem að heitir Suurmestari í Finnlandi og Kongen befaler í Noregi, en fékk að heita Taskmaster Ísland hér á landi. Annað dæmi er breska söngvakeppnin Idol, sem fékk að heita Stjörnuleit í gamla daga, en árið 2022, þegar þáttaröðin kom aftur til Íslands, hét það einfaldlega bara Idol.
Ég gæti haldið lengi áfram.
Snúum vörn í sókn
Við viljum vernda íslenskuna, ekki satt? Gerum þá eitthvað í því!
Þýðum markaðsefni, skiptum viðmótinu í okkar kerfum yfir á íslensku, höldum áfram að skapa ný orð.
Íslenskan á að vera tungumál í stöðugri sókn. Hún er það að mörgu leyti, en betur má ef duga skal!
–
Frekara lesefni
Læra má nánar um uppruna orðsins diabetes og sykursýki inn á Etymonline: https://www.etymonline.com/search?q=diabetes
Einnig er að finna gagnlegt efni um sjúkdóminn á Wikipedia: https://en.wikipedia.org/wiki/Diabetes
Langar einnig að benda á að skemmtilegar umræður um íslenskuna geta skapast á Facebook-hópnum Málspjall, sem að Dr. Eiríkur Rögnvaldsson heldur úti: https://www.facebook.com/groups/malspjall/





