Það er alltaf gaman þegar að maður ýtir á enter takkann. Hvort sem það sé verið að senda umsókn, senda inn grein, samþykkja tilboð, monta sig af nýjum áfanga, nú eða opna vefsíðu.
Ég hef lengi haft gaman af því að skrifa. Ég hef skrifað allskonar efni, allt frá fréttatilkynningum til umsagna um stjórnvaldsmál. Þetta voru í upphafi iðulega langir textar, uppfullir af misgáfulegum staðreyndum.
Ótrúlegt en satt hafði ég þó ekki birt eina einustu grein þegar liðið var á árið 2025. Um haustið ákvað ég að gera eitthvað í því og 27.október 2025 á Alicante sendi ég inn mína fyrstu grein í fjölmiðil. Hún bar það skemmtilega heiti Geta öll dýrin í skóginum verið vinir? og fjallaði um aukna skautun í samfélagsumræðunni.
Síðan þá hafa birst eftir mig fimm aðrar greinar. Allar voru þær birtar á Vísi á tímabilinu nóvember 2025 til maí 2026, að undanskilinni einni grein sem birtist í Fjarðarfréttum hér í Hafnarfirði.
Um sumarið, að loknum sveitarstjórnarkosningum, byrjaði þjóðin að rökræða um Evrópusambandið. Vísvitandi ákvað ég að birta enga grein á þessum tíma og rökin voru tvenn. Annarsvegar var alltof mikil skautun í ESB umræðunni, sem mig langaði ekki að taka þátt í. Hinsvegar vissi ég að greinar um önnur málefni en ESB myndu drukkna í umræðunni.
En nú er þjóðaratkvæðagreiðslan afstaðin og því tilvalinn tími til þess að koma sér aftur af stað. En í þetta skiptið ákvað ég að gera þetta öðruvísi.
Ný stefna
Ég ákvað að setja mér stefnu um að skrifa oftar stutta pistla um hnitmiðaðri málefni sem að mér finnst áhugaverð og tilefni til þess að fjalla um. Tilgangur þessarar síðu, Hugleiðinga, er að vera vettvangur fyrir þessa pistla og opna á samfélag fólks sem að deilir svipuðum áhuga á málefnum líðandi stundar.
Á sama tíma mun ég í minna mæli birta greinar í fjölmiðla, og það yrði þá helst í tengslum við hin ýmsu störf sem ég sinni. Þær greinar birtast áfram á steinarbragi.is/greinar en ég mun þó uppfæra Hugleiðara (það eru þeir sem lesa Hugleiðingar) þegar að slíkar greinar bætast í safnið.
Hvernig virkar þetta?
Þessi vefsíða er keyrð á forritinu Substack. Víðsvegar um síðuna er hægt að skrá netfangið sitt á póstlista, og þá færð þú tölvupóst þegar að nýr pistill birtist.
Einnig er hægt að lesa í Substack appinu, en þar má einnig finna kempur á borð við: Dr. Eirík Rögnvaldsson, Jóhann Pál Jóhannsson, Dag B. Eggertsson og Snorra Másson.
Einfaldasta leiðin er þó að fara inn á síðuna hugleidingar.steinarbragi.is og lesa pistlana þar.
Takk fyrir að lesa!
Það er alltaf erfitt þegar að þú ferð af stað í svona vegferð að átta sig á því hvort að fólk muni yfir höfuð lesa pistlana þína. Þú verður að vera ansi bjartsýnn þegar að þú ferð með svona apparat í loftið.
Ég er því afar þakklátur fyrir hvern og einn lestur, hvern og einn einstakling sem að sýnir efninu mínu áhuga.
Ég vil þakka þér kærlega fyrir að gefa þér tíma til þess að skoða þig um og virða fyrir þér það sem á þessari síðu er.
Ef að þú vilt vita meira um mig, getur þú farið í ,,About’’ í valmyndinni. Ég hef ekki enn getað breytt þýðingunni á sumum tökkum hér á síðunni, ég vona að þið sýnið skilning á því.
Einnig vil ég benda á að ég er alltaf opinn fyrir samtali, endilega sendu mér póst á hallo@steinarbragi.is eða einkaskilaboð á samfélagsmiðla þar sem að ég er með notendanafnið @steinarnoi.
Fyrsta greinin á þessum vef er þegar farin í loftið og ég vona að þið kynnið ykkur hana.
En fyrst og fremst, takk fyrir að lesa!
Ykkar,
Steinar Bragi



