Textar

Hér gefur að líta allskonar textaefni eftir mig sem birst hefur opinberlega, í fjölmiðlum eða samráðsgáttum.

Greinar 2026

Framtíðin er þeirra

Vísir • 4. maí 2026

,,Eins og felst í nafninu á grunnskóli að kenna grunninn og framhaldsskóli á að kenna framhaldið. Ekki allir nemendur fara í framhaldsskóla, sumir fara að vinna, aðrir fara erlendis. Því taldi ég það segja sig sjálft að grunnskóli á að búa nemendur undir lífið og allt sem því fylgir. Framhaldsskóli á þá að kenna ítarefni. Því miður er það ekki þannig.’’

Lesa greinina hér á Vísi


,,Þú hýri Hafnarfjörður’’

Fjarðarfréttir • 16. apríl 2026

,,Komandi stjórn bæjarins þarf einnig að taka afstöðu til ýmissa mikilvægra mála. Hvernig viljum við haga húsnæðismálum fyrir íþróttir og menningu í bænum? Hvernig á frístundastyrkurinn að vera? Hvernig getum við bætt þjónustu við bæjarbúa, bæði unga og aldna? Klassísk bitbein eins og skipulagsmál, samgöngumál og rekstur bæjarins láta ekki heldur sitt eftir liggja!’’

Lesa greinina hér í Fjarðarfréttum


,,En fatlað fólk er svo dýrt’’

Vísir • 8.apríl 2026

,,Staðreyndin er sú að síðan 2011 hafa sveitarfélögin borið meginábyrgð á þjónustu við fatlað fólk. Vissulega hafa sveitarfélögin reynt að gera eitthvað til þess að bæta þjónustuna, en deilur um fjármögnun þessarar þjónustu hafa verið háværari heldur en þjónustuveitingin sjálf.’’

Lesa greinina hér á Vísi


Takk!

Vísir • 5. mars 2026

,,Staðan hjá mér er langt í frá æðisleg en ég er samt heppnari en mörg önnur. Fyrir það er ég þakklátur en um leið sorgmæddur yfir því að mörg fá ekki að nýta þjónustu sem hentar þeim.’’

Lesa greinina hér á Vísi

Greinar 2025

Er kominn skrekkur í fullorðna fólkið?

Vísir • 12. nóvember 2025

,,Þarna voru allskonar börn, börn með fatlanir, börn með dökkan húðlit, börn af erlendum uppruna - eflaust einhver sem eiga foreldra í Miðflokknum og önnur í Samfylkingunni. En öll stóðu þau saman og fyrir vikið má búast við að upplifunin verði margfalt betri.’’

Lesa greinina hér á Vísi


Geta öll dýrin í skóginum verið vinir?

Vísir • 27.október 2025

,,Það að lesa í gegnum samfélagsmiðla í dag er eins og að ganga inn í leikskóla á slæmum degi þar sem að mörgum börnum hefur lent saman og starfsfólkið nær ekki tökum á aðstæðum. Fólk virðist telja sig geta beitt aðra andlegu ofbeldi án þess að það hafi neinar afleiðingar.’’

Lesa greinina hér á Vísi

Umsagnir

(S-40/2026) Mótun ungmennastefnu Íslands

Samráðsgátt • 25. mars 2026

,,Því má heldur ekki gleyma að ekki eru öll börn og/eða ungmenni með sömu þarfir eða sömu sýn. Tryggja þarf fjölbreytni í hópum, þannig að hægt sé að sjá þarfir allra ungmenna í samfélaginu, s.s. þeirra sem eru af erlendum uppruna, hinsegin, með fötlun eða aðra örðugleika.’’

Lesa umsögninaFela umsögnina

Undirritaður þakkar tækifærið til að gefa umsögn um mótun ungmennastefnu Íslands. Um er að ræða mikilvægt málefni sem þarf að fylgja vel eftir.

Ég hef starfað með málefni barna og ungmenna lengi, eða frá því að ég tók sæti í Ungmennaráði Hafnarfjarðar árið 2022. Síðan þá hef ég unnið með einum eða öðrum hætti að þessum málefnum, bæði innan sveitarfélaga sem og frjálsra félagasamtaka.

Mig langar að byrja á því að hampa þeim umsögnum sem á undan eru komnar. Ég fagna sérstaklega góðum hugmyndum frá nemendafélögum grunnskóla og ungmennaráðum sveitarfélaga.

Mig langar þó að leggja mitt af mörkum. Ég mun því hér á eftir gefa athugasemdir og ráð fyrir einstaka flokka, eins og þeir eru tilgreindir í áformaskjali.

Réttindi og virk þátttaka ungmenna í samfélaginu

Í umsögn minni um breytingar á æskulýðslögum, sem að fyrri ríkisstjórn áformaði (mál S-264/2023), hnipraði ég á mikilvægi ungmennaráða. Ungmennaráð eru gríðarlega mikilvægur vettvangur fyrir ungt fólk til þess að láta raddir sínar heyrast.

Ungmennaráð eru starfandi innan flestra sveitarfélaga og raunar segir í 2. mgr. 11.gr. æskulýðslaga 70/2007 að sveitarfélög skuli hlutast til um stofnun ungmennaráða. Þessi lög tóku gildi í apríl 2007 en þá var ekki búið að lögfesta Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna.

Kveða þarf nánar á um Ungmennaráð sveitarfélaganna í lögum. Nauðsynlegt er þó að gera greinarmun milli ungmennaráða fyrir börn undir 18 annarsvegar og ungmenni upp að 30 ára aldri hinsvegar. Börn undir 18 hafa hvorki kosningarétt né framboðsrétt og þurfa alfarið að reiða sig á að fullorðnir komi þeirra málum áleiðis. Ungmenni milli 18-30 geta hinsvegar sjálf komið málum til leiðar og eru t.a.m. öflugar ungmennahreyfingar starfandi innan svo gott sem allra íslenskra stjórnmálaflokka.

Kveðið er skýrt á um ráðgjafahóp Umboðsmanns barna og Barnaþing í lögum 83/1994 um umboðsmann barna, en auðvitað má alltaf skoða nánar hvernig best er að koma málum barna á landsvísu til leiðar.

Menntakerfið

Mér finnst mikilvægt að minna á að ekki öll ungmenni á Íslandi, þó vissulega mörg séu, innritast í framhaldsskóla. Þá falla einnig margir nemendur úr námi á framhaldsskólastigi. Þess vegna er hreinasta nauðsyn að mikilvægar greinar, sem í dag eru margar kenndar á framhaldsskólastigi, eða ekki kenndar yfir höfuð, verði innleiddar á grunnskólastig.

Ég er m.a. að tala um fjármálalæsi og skyndihjálp. Einnig má skoða hvort að hægt sé að auka inngildingu frekar í samfélaginu með því að kenna t.a.m. grunn í íslensku táknmáli, en slíkt getur gagnast mörgum í framtíðinni.

Tryggja þarf lýðræði innan íslenskra skóla. Víða er ákvæði um skólaráð í lögum um grunnskóla (91/2008) og reglugerð um skólaráð (1157/2008), illa eða ekki fylgt. Gera þarf grein fyrir samráði við nemendur grunnskóla í lögum.

Skoða þarf betur stuðning við nemendur í grunnskólum og endurskoða skóla án aðgreiningar, þó þannig að hlúð sé að fötluðum nemendum, nemendum af erlendum uppruna og nemendum með námsörðugleika.

Mér er sérstaklega til hugar að fjölga námsúrræðum fyrir langveika nemendur með miklar stuðningsþarfir en fyrir mörg þeirra er bara einn möguleiki í boði: Klettaskóli í Öskjuhlíð. Auka þarf sérþekkingu á fötlunum innan skólakerfisins þannig að öll telji sig eiga heima þar. Þetta á bæði við um grunn- og framhaldsskóla.

Framhaldsskólastigið þarf að fara í gegnum róttæka endurskoðun þannig að það henti öllum. Sjálfur þekki ég það af eigin raun hvernig framhaldsskólakerfið getur brugðist nemendum sem eru einhverfir eða með ADHD, svo eitthvað sé nefnt. Bjóða þarf upp á fjölbreyttari kennslumöguleika, en þar get ég nefnt sem fyrirmynd Fjarnámshlaðborð Keilis. Sveigjanleiki má vera meiri í framhaldsskólakerfinu og einfalda þarf boðferla, t.a.m. þegar kemur að veikindum. Sérstaklega má endurskoða áfangakerfi framhaldsskólanna, t.d. má skoða að meta í auknum mæli að meta reynslu sem að gagnast nemenda, líkt og sjálfboðastörf.

Íþróttir, tómstunda- og félagsstarf, menning og listir

Það að taka þátt í skipulögðu tómstunda- og félagsstarfi á ekki að vera munaður fyrir börn. Öll börn eiga að hafa þess kost á að geta stundað tómstund. Þá er ég ekki einungis að tala um boltaíþróttir, öllu félagsstarfi þarf að gera hátt undir höfði. Þar er ég m.a. að tala um listir, skátastarf og jaðaríþróttir.

Gera þarf börnum frá unga aldri kost á að prófa allskonar íþróttir. Þannig getur íþróttakennsla í grunnskólum falist í því að fara í heimsóknir til íþróttafélaga sem að kynna íþróttina. Þannig taka börn upplýsta ákvörðun og foreldrar eyða síður fjármunum í íþrótt sem barn er í í viku eða mánuð.

Gera þarf ungmennum kost á að stunda íþróttir án þess að vera þvinguð út í atvinnumennsku, eins og raunin virðist vera með mörg íþróttafélög hérlendis. Í dag er staðan þannig að börn á framhaldsskólaaldri stunda síður skipulagt íþróttastarf, enda vilja ekki öll börn endilega fara á samning. Þessu til stuðnings bendi ég á tölfræði ÍSÍ
Gera þarf listgreinum hærra undir höfði, sérstaklega inn í skólum. Ég fann það sjálfur hvernig uppsetning á söngleik í mínum skóla þjappaði hópinn saman og veitti þeim jákvætt veganesti í framtíðina. Jafnframt hefur verið talað um þetta í samhengi við verkefni eins og Skrekk, Fiðringinn, og Skjálftann.

Heilbrigðiskerfi, heilsa, vellíðan, velferð og öryggi

Hjúkrunarfræðingar í grunnskólum þurfa að vera í 1% starfshlutfalli á hverja 4 nemendur, þannig að hjúkrunarfræðingur í skóla með 400 nemendum eða fleiri sé ávallt í fullu starfi. Styrkja þarf hlutverk hjúkrunarfræðings þannig að nemendur geti leitað til hans með öll sín heilsufarslegu vandamál, í stað þess að þurfa að bíða óralengi eftir heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu eða spítala. Með snemmtækri íhlutun er þannig hægt að koma í veg fyrir að vandamálin verða flóknari, stytta boðleiðir og mögulega stytta bið á heilsugæslu.

Styrkja þarf hlutverk sérfræðinga í skólum, s.s. félagsráðgjafa, sálfræðinga, og þroskaþjálfa. Með því að tryggja það að minnsta kosti einn sérfræðingur sé viðstaddur í skóla öllum stundum er hægt að fyrirbyggja það að vandamál stækki.

Tryggja þarf hlutverk kennara, náms- og starfsráðgjafa, og annars starfsfólk í skóla sem er menntað í kennslufræðum sem leiðsagnaraðila í námi. Í dag er það sumstaðar þannig að þetta fólk tekur að sér að vera hálfgerðir sálfræðingar, sem er ekki það sem þau eru menntuð í. Þau gera sitt besta en betra væri ef að nemendur gætu treyst góðri þjónustu þessa fólks þegar kemur að námi og heilbrigðismenntaðra sérfræðinga varðandi heilsu.

Tryggja þarf að farsældarþjónusta, skv. lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna (86/2021) henti öllum og skoða má vel hvort að hægt sé að lengja farsældarþjónustuna þannig að hún nái umfram 18 ára aldurinn, eða a.m.k. þangað til nemendur hafa lokið framhaldsskóla. Einnig þarf að vera einhverskonar form af farsældarþjónustu til fyrir ungt fólk yfir 18 ára aldri, með flókin heilsufarsleg vandamál, þar sem margir ólíkir aðilar koma að málum.

Atvinna og tækifæri

Taka þarf betur utan um hinn svokallaða NEET hóp (Not in Education, Employment or Training) sem eru ungmenni sem ekki eru í fastri virkni, s.s. skóla eða starfi. Veita þarf þessum hópi stuðning, ráðgjöf í lífinu, skipulagt tómstundastarf (fyrir þá sem það hentar), en fyrst og fremst hvatningu til dáða.

Fjölga þarf möguleikum til að fá starfsreynslu metna í nám. Það gefur nemendum kraft og sýnir það að þeirra reynsla sé verðug til framtíðar. Í því samhengi vísa ég til atriða hér að ofan undir liðnum menntakerfi.

Fjölga þarf möguleikum ungs fólks til þess að sinna sjálfboðastörfum innanlands. Litlir sem engir möguleikar eru fyrir ungmenni, þá sérstaklega undir 18 ára aldri, til þess að sinna sjálfboðastörfum innanlands. Sagt er að sjálfboðastörf víkki sjóndeildarhringinn og það myndi eflaust hjálpa mörgum ungmennum að finna gleði og tilgang. Þetta er hægt að vinna í samstarfi við sjálfboðasamtök á borð við Rauða krossinn og Landsbjörg.

Skoða má hvort að hægt sé að styrkja ungmenni í framhaldsnámi. Horfa má til SU kerfisins í Danmörku í þessu samhengi, þar sem allir nemendur í framhaldsnámi yfir 18 ára aldri eiga rétt á styrk til þess að framfleyta sér í námi. Þetta myndi þá forða nemendum frá því að drukkna í vinnu utan skóla og mögulega draga úr brottfalli. Þannig geta nemendur að fullu einbeitt sér að námi og öllu sem því fylgir, líkt og félagslíf.

Að eignast heimili og barneignir

Stór áhrifaþáttur undir þessum lið eru náttúrulega vextir og verðbólga. Þau gera fjölmörgu ungu fólki hreinlega ómögulegt að komast inn á fasteignamarkaðinn.

Skoða má fjölgun íbúða fyrir ungt fólk, svipað og íbúðir með kvaðir um að aðeins eldra fólk megi kaupa þær. Hlutdeildarlánakerfið virkar vel, en það tekur bara á nýjum íbúðum. Ef að ungum kaupendum líst vel á íbúð sem er kannski tíu ára gömul og nú þegar búin að fara í gegnum hlutdeildarlánakerfið - býðst þeim ekki að kaupa þá íbúð með hlutdeildarláni heldur verða þau alfarið að reiða sig á eigið fé og lán í banka.

Umræða um barneignir hefur verið mikil í samfélaginu undanfarið og þá get ég m.a. vísað til baráttu um frjálsa ráðstöfun fæðingarorlofs og málefni leikskóla. Mikilvægt er að ræða þessi mál á yfirveguðum nótum en þó með opnum huga. Hér gæti ég farið út í ýmis mál sem að hafa komið oft upp, líkt og lögfestingu leikskólastigsins, en ég ætla að sleppa því í þetta skiptið.

Alþjóðlegt samstarf

Margt er gert vel þegar kemur að alþjóðastarfi. Fjölmörg samtök á Íslandi gefa ungmennum tækifæri á að fara í skiptinám og/eða í sjálfboðavinnu erlendis. Fjölmargir skólar hafa auk þess innleitt Erasmus skemað sem að Rannís heldur utan um hér á landi.

LUF tilnefnir sendifulltrúa ungs fólks hjá Sameinuðu þjóðunum og auk þess býðst ungmennum tækifæri á samvinnu austan megin við okkur.

En alltaf má gera betur, og í þessu samhengi má sérstaklega skoða hvernig kynningarstarfi er háttað.

Auk þess má skoða hvernig hægt sé að víkka sjóndeildarhringinn innan Evrópusambandsins, sérstaklega í tengslum við þá umræðu sem nú er í gangi vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna, umræðu sem mun eflaust vara lengi.

Vegna mótunar ungmennastefnu

Þegar talað er um ýmissa minnihlutahópa kemur oft upp frasinn ,,Ekkert um okkur, án okkar!’’. Ég ítreka því mikilvægi þess að í starfshópi um mótun ungmennastefnu sé að finna börn og ungmenni, ekki bara sérfræðinga í málefnum þeirra.

Í raun má innleiða það fyrirkomulag í allar nefndir og stýrihópa á vegum ríkis og sveitarfélaga, börn eiga að vera við borðið þegar fjallað er um málefni þeirra, og ungmenni þegar fjallað er um málefni þeirra.

Því má heldur ekki gleyma að ekki eru öll börn og/eða ungmenni með sömu þarfir eða sömu sýn. Tryggja þarf fjölbreytni í hópum, þannig að hægt sé að sjá þarfir allra ungmenna í samfélaginu, s.s. þeirra sem eru af erlendum uppruna, hinsegin, með fötlun eða aðra örðugleika.

Lokaorð

Hér hef ég hniprað niður á blað mínar hugleiðingar og ráðleggingar í tengslum við gerð Ungmennastefnu Íslands.

Ég er tilbúinn til þess að koma að frekara samráði við mótun stefnunnar, sé þess óskað.

Annars óska ég öllum hlutaðeigandi góðs gengis við frumvarpsgerð.

(S-264/2023) Áform um frumvarp til laga um æskulýðs og frístundastarf

Samráðgátt • 26. janúar 2024

,,Það er því mikil þörf á að skerpa á þessum hluta löggjafarinnar. Tilvalið væri að lögfesta ungmennaráð og hlutverk þeirra. Ákveðnar reglur þarf að setja um skipan ráðanna, t.a.m. hvort að eldri en 18 ára sé heimil í þessi ráð og hver lágmarksaldur nefndarmanna er. Einnig hvaða nefndum og ráðum þau eiga rétt á að sitja í. Mega ungmenni t.a.m. ekki taka þátt í starfi fræðsluráðs/skólanefndar fyrir grunnskóla í sveitarfélaginu, ólíkt kennurum, skólastjórnendum og foreldrum?’’

Lesa umsögninaFela umsögnina

Góðan dag,

þetta er mín persónulega umsögn. Umsögn Ungmennaráðs Hafnarfjarðar var send sér þann 23.1.2023.

Ég fagna því að komið sé að endurskoðun æskulýðslaga sem eru vissulega barn síns tíma, sérstaklega að teknu tilliti til þeirrar þróunnar sem hefur átt sér stað undanfarin ár með tilkomu barnasáttmálans og farsældarlaga.

Mig langar þó að minna á eitt, ungmennaráðin. Þau eru í raun aðeins varin með einni lítilli klausu í núgildandi æskulýðslögum þar sem segir að sveitarfélög skuli ,,hlutast” til um stofnun ungmennaráðs en sveitarfélögin ákveða annars sjálf alla umgjörð utan um þau.

Ungmennaráð sveitarfélaganna eru gríðarlega mikilvæg starfsemi, eitt af fáum tækifærum ungmenna undir 18 ára aldri til þess að láta raddir sínar heyrast innan stjórnkerfisins. Ég hef verið í ungmennaráði í eitt og hálft ár. Á mínum árum í ungmennaráðinu hefur mjög oft verið brýnt fyrir okkur að við séum raddir allra ungmenna og allra barna yfir höfuð í okkar sveitarfélagi. Við höfum haft tækifæri til þess að hitta bæjarstjórn einu sinni á ári, halda kaffiboð með þeim einu sinni á ári og fá einstaka aðra fundi annaðhvort í ráðhúsinu eða til okkar. Við erum einnig með fulltrúa í tómstundanefnd, stýrihópi barnvæns sveitarfélags og einstaka starfshópum.

Það eru samt alls ekki allir jafn heppnir og við. Það eru líka margir mikið heppnari en við. Milli sveitarfélaga er oft gríðarlega mikill munur á stöðu ungmennaráða. Í sumum sveitarfélögum eru stór og öflug ungmennaráð, öðrum engin. Sumstaðar eru ungmennaráð með fulltrúa í öllum föstum ráðum og nefndum sem fulltrúar ungmenna. Í sumum einu en öðrum ekkert. Sum sveitarfélög ganga jafnvel svo langt að launa nefndarmönnum full laun en önnur kæra sig ekki um það. Það getur skapað mikið núning innan og milli þeirra sveitarfélaga og það hefur, að minnsta kosti í mínu sveitarfélagi, minnkað áhuga á starfi ungmennaráða.

Það er því mikil þörf á að skerpa á þessum hluta löggjafarinnar. Tilvalið væri að lögfesta ungmennaráð og hlutverk þeirra. Ákveðnar reglur þarf að setja um skipan ráðanna, t.a.m. hvort að eldri en 18 ára sé heimil í þessi ráð og hver lágmarksaldur nefndarmanna er. Einnig hvaða nefndum og ráðum þau eiga rétt á að sitja í. Mega ungmenni t.a.m. ekki taka þátt í starfi fræðsluráðs/skólanefndar fyrir grunnskóla í sveitarfélaginu, ólíkt kennurum, skólastjórnendum og foreldrum?

Ég óska hlutaðeigandi góðs gengis í frumvarpsgerð.

Ég er tilbúinn til þess að veita frekari upplýsingar sé þess óskað. Þá efast ég ekki um að önnur ungmennaráð séu tilbúin til þess sama.

Takk fyrir að lesa!