Undanfarinn mánuð hafa borist æðislegar fréttir. Við Íslendingar hlutum okkar annan nóbelsverðlaunahafa í bókmenntum, kjarasamningar héldu, Melaskóli vann Svakalegu lestrarkeppnina, samtal þjóðar var haldið þann 10.október sl., fyrstu jólabækurnar og græna jólatertan eru komnar í búðir; ég gæti haldið lengi áfram.
Samt fá þessar fréttir voða lítið pláss. Í staðinn heyrum við af átökum innan ASÍ, mögulegum samkeppnisbrotum, átökum úti í heimi, deilum á Alþingi; og þá er ég aðeins búinn að telja þessa viku.
Ofan á það allt skiptir svo gríðarlegu máli að nota peptíða, Ozempic og allt það drasl, líta vel út, vera með stórt tengslanet og djamma fram á nótt.
Já, lífið er flókið!
Er betra að lifa í batnandi heimi?
Heimurinn hefur breyst töluvert undanfarin ár. Fyrir þrjátíu árum voru ekki til fyrirbæri á borð við Facebook, Instagram og TikTok. Þá lögðu fyrirtæki allt í það að auglýsa fyrir okkur vörur sínar með formlegum auglýsingum í dagblöðum eða sjónvarpi. Nú þarf helst að dansa einhvern kjánalegan dans eða ,,mæma’’ í myndbandi, helst undir einni mínútu, með vöruna einhverstaðar á skjánum.
Fyrir fjörutíu árum voru ekki til fyrirbæri á borð við snjallsíma. Þá þurfti fólk að burðast með klunnalega síma eða nota þá heima fyrir eða í vinnu. Samskipti með tölvupósti fóru fram í gegnum borðtölvu. Nú þykir það ómögulegt ef að við gleymum símanum heima.
Vanlíðan og skautun
Ég hef áður talað um skautun í þjóðfélaginu, m.a. í greininni Geta öll dýrin í skóginum verið vinir? og Hvað ef?
En það er áhugavert að skoða hvort að líðan hefur versnað meðfram aukinni notkun samfélagsmiðla. Vissulega hefur rannsóknum um þetta fjölgað en sem var á níunda áratugnum en staðan í dag er þannig að 43,3% framhaldsskólanema meta andlega heilsu sína sæmilega eða lélega (Embætti Landlæknis, 2026). Á Forvarnardaginn þann 1.október sl. fór fréttastofa Ríkisútvarpsins í heimsókn í Verslunarskóla Íslands. Þegar Erla María Davíðsdóttir, fréttamaður, spurði ungmennin ,,Hvers vegna líður ungu fólki illa í dag?’’, stóð ekki á svörum: samfélagsmiðlarnir voru það fyrsta sem var nefnt, til viðbótar við staðalímyndir (RÚV, 2026).
Svo er önnur staðreynd: 11,4% fullorðinna eru einmana, þrátt fyrir að við séum tengdari en nokkru sinni fyrr í gegnum þessi litlu box (Embætti Landlæknis, 2026).
Einmana á tengdum tímum
Stöldrum reyndar aðeins við einmanaleikann. Í fyrra upplifuðu 18,3% ungs fólks að þau væru einmana samanborið við 11,4% árið 2016. Þetta er raunverulegt vandamál!
Við virðumst misskilja einmanaleika. Fólk sem er eitt er ekki endilega einmana. Sumir eru einfaldlega ,,introvert’’. Aftur á móti þurfum við flest einhvern félagsskap, mismikinn og í mismunandi formi, en þegar að hann er núll, getur lífið orðið erfitt. Það kallast einmanaleiki
Þetta þekki ég sjálfur. Ég hef upplifað það að drukkna í of miklum félagsskap (sem þætti eflaust ekki endilega mikill), og svo vera á núllpunkti, einmana.
Samfélagsmiðlar geta nefnilega hjálpað mörgum. En við verðum að finna jafnvægi milli þess að fara alfarið í gegnum þá, annarsvegar og í formi mannlegra samskipta, hinsvegar.
Við verðum að líta í kringum okkur, en um leið virða það sem fólk þarf.
Á að banna aftur bjórinn?
Hugmyndir eins og að banna samfélagsmiðla fyrir ungt fólk hafa komið upp, oft frá einstaklingum sem auglýsa sig eða sína starfsemi einna mest í gegnum samfélagsmiðla.
En ég held að við sem heimur verðum að gera okkur grein fyrir því að við getum ekki bannað hlutina. Ég get nefnt dæmi. Hér á Íslandi á ÁTVR að vera með einkaleyfi fyrir sölu áfengis á Íslandi. Samt spretta hér upp netverslanir með áfengi eins og gorkúlur. Persónulega hef ég sjaldan séð jafn mikla unglingadrykkju, þegar ég fer í teiti með öðru ungu fólki kemur fólk með heilu rúturnar af Gull og Carlsberg.
Annað dæmi. Hér á Íslandi eiga örfáir að hafa leyfi til sölu happdrættismiða og reksturs veðmála, þ.á.m. Íslensk Getspá og Háskóli Íslands. Samt koma núna ,,áhrifavaldar’’ (sem nb. er hugtak sem að þekktist ekki svo vel fyrir tuttugu árum) og auglýsa vefsíður á borð við Coolbet og Betson í stórum stíl.
Við getum ekki bannað netið, sama hvað við viljum. En það eru til ýmsar lausnir.
Ótrúlegt en satt eru til lausnir!
Í upphafi þessa pistils nefndi ég hvað við eigum það til að festa okkur í neikvæðninni. En við getum sýnt okkur sjálfum virðingu og samfélagslega ábyrgð.
Nýlega rakst ég á vefsíðuna betrifrettir.is. Ég hef verið að reyna að finna út hver ber ábyrgð á henni, en hún er algjör snilld fyrir þá sem vilja einblína á jákvæðar fréttir.
Við getum hætt að fylgja aðgöngum, sett upp app á borð við Brainrot, eða bara hætt á þessum miðlum. Á sama tíma geta áhrifavaldar hætt að benda á peptíða o.þ.h. og benda frekar á góða bók eða hluti til að styrkja okkur.
Ég held að hver og einn þurfi að skoða þetta fyrir sig, líta í eigin barm, því oftast er lausnina að finna þar.
Lokaorð
Að lokum langar mig þó ekki að enda á neikvæðninni allri saman. Margt gott er í pípunum eða þegar í framkvæmd.
Ég get t.a.m. nefnt góð störf frú Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Hún hefur lengi talað fyrir ábyrgri notkun tækninnar og setti á dagskrá Samtal þjóðar, sem fór fram 10.október sl. og örugglega einhverntímann aftur.
Svo er helling af fólki sem hefur talað um þetta sama, áhrifavaldar eru margir að standa sig mjög vel og láta þetta málefni sig varða. Því ber að hrósa!
Svo verð ég að hrósa öllum þeim sem hafa náð að komast af samfélagsmiðlum eða tekið vel til á þeim. Það er gríðarlega erfitt fyrir marga!
Heimildir og frekara lesefni:
Stuðst var við Lýðheilsuvísa Embættis Landlæknis (uppfært 23.9.2026) Sótt af: https://www.island.is/lydheilsuvisar/ [mælaborð]
Stuðst var við frétt Erlu Maríu Davíðsdóttur og Jóhönnu Vigdísar Hjaltadóttur hjá fréttastofu RÚV (1.10.2026) Sótt af: https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/frettir/30762/bfblqk/mikilvaegt-ad-geta-talad-um-erfidu-hlutina/
Vefsíðan Betri fréttir var opnuð fyrr í október, hana er hægt að finna á: https://www.betrifrettir.is/
Langar líka að benda á Samtal þjóðar, verkefni frú Höllu Tómasdóttur: https://www.talasaman.is/





